Æfingaganga á morgun fimmtudaginn 10. apríl

Minnum á æfingagönguna á morgun fimmtudaginn 10. apríl kl. 18:00.

Mæting er við Sólheimakotsafleggjarann.

Flott mæting var í gær í æfingagönguna og var hópnum skipt upp í 2 hópa. Ekki var mikið af fugli á svæðinu en góður andi var í hópnum.

Veðurspáin fyrir morgundaginn er góð, bjart, fallegt veður og hæg norð-austan.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kveðja Vorsteh- og fuglahundadeild
Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.