Aðalfundur HRFÍ í kvöld miðvikudag kl.20

Minnum á aðalfund Hundaræktarfélags Íslands í kvöld  miðvikudaginn 23. maí kl. 20 á Grand Hótel Reykjavík og á Akureyri.  Í framboði til stjórnar eru þau Ólafur E. Jóhannsson fyrrum formaður FHD, Delía Howser, retrieverdeild og Guðmundur A. Guðmundsson fyrrum formaður Retrieverdeildar og núverandi stjórnarmaður deildarinnar.

Sjá nánar í tilkynningu HRFÍ hér fyrir neðan. Mætum öll og sýnum félaginu okkar og tilvonandi stjórnarmönnum stuðning.

Nánar um lagabreytingartillögur og önnur mál má sjá á heimasíðu HRFÍ sem og ársskýrslu stjórnar HRFÍ:  www.hrfi.is

Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands
í Reykjavík og á Akureyri

Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 23. maí kl. 20:00 og á Akureyri gegnum fjarfundabúnað, á vegum Svæðafélags Akureyrar.
Á Akureyri verður fundurinn haldinn á verkstæðinu Bútur, Draupnisgötu 9 og hafa félagsmenn á þeim fundi kosningarétt.
Aðrir sem búa út á landi geta óska eftir að fylgjast með fundinum með fjarfundabúnaði en þeir hafa ekki kosningarétt.

Dagskrá:

1. Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað
2. Skýrsla stjórnar HRFÍ
3. Ársreikningar félagsins ásamt skýrslum löggilts endurskoðanda
og félagskjörinna skoðunarmanna fyrir síðastliðið ár, lagðir fram
til staðfestingar
4. Skýrsla um starfsemi siðanefndar
5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil
6. Lagabreytingar
7. Kosning stjórnarmanna skv. 10.gr.
8. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna og tveggja til vara
9. Kosning siðanefndar
10. Önnur mál

Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir sem greitt hafa félagsgjald sitt fyrir það ár
sem aðalfundur er haldinn á, fimm virkum dögum fyrir aðalfund.

 

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Aðalfundur HRFÍ í kvöld miðvikudag kl.20

Sækiprófsæfing næsta fimmtudag

Æfingar fyrir sækiprófin sem haldin verða í sumar verða á fimmtudögum kl. 19,  a.m.k. til að byrja með.

Lárus Eggertsson stýrir æfingunni á fimmtudaginn og mæting er við Sólheimakotsafleggjarann.

Allir velkomnir og hafið með ykkur bráð eða dummy

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Sækiprófsæfing næsta fimmtudag

Góð mæting í kynningu á sækiprófum

Mjög góð mæting var á kynningu Svafars Ragnarssonar fuglahundadómara á sækiprófum sem haldið var í Sólheimakoti á uppstigningardag. Svafar kynnti framkvæmd prófa og æfingar fyrir þau.

Æfingar verða fram á prófi og verða kynntar hér á síðunni.

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Góð mæting í kynningu á sækiprófum

Kynning og æfingar fyrir sækiprófin

Nú á fimmtudaginn 17. maí (uppstigningardag) kl. 16 verður kynning á sækiprófum og æfingum fyrir þau í Sólheimakoti.

Svafar Ragnarsson fuglahundadómari kynnir hvernig sækipróf fer fram sem og æfingarnar sem verða í hverri viku fram að prófi FHD (23/6) og síðar Vorstehdeildar 11/8  og  12/8

Komið og kynnist hvernig prófin fara fram þ.e. sókn í vatn, spor og leita/sækja.

Eftir Sólheimakot verður verkleg æfing fyrir þátttakendur og hunda þeirra.

Allir velkomnir

.

 

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Kynning og æfingar fyrir sækiprófin

Fréttir frá stjórn Vorstehdeildar

Stjórn Vorstehdeildar kom saman á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund og skipti með sér verkum sem hér segir

Gunnar Pétur Róbertsson, formaður

Guðjón Snær Steindórsson, varaformaður

Kristjón Jónsson, ritari

Lárus Eggertsson, gjaldkeri

Pétur Alan Guðmundsson, gagnavörður

Stjórn óskar eftir starfskröftum deildarmeðlima í eftirfarandi nefndir:

Veiðiprófanefnd

Göngu- og æfinganefnd

Sýninganefnd

Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við formann deildarinnar eða í vorsteh@vorsteh.is fyrir 20. maí

Við bendum áhugasömum um að skrá sig á póstlista deildarinnar til að fá upplýsingar og fréttir frá deildinni á póstfangið:  vorsteh@vorsteh.is

Stjórn óskar eftir tillögum frá félagsmönnum um hvað þeir vilja sjá í starfi deildarinnar bæði í sumar, haust og næsta vetur.

Minnum á að æfingar fyrir sækipróf sem hefjast fimmtudaginn 17. maí (uppstigningardag) og verða kynntar nánar á síðunni.

 

 

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Fréttir frá stjórn Vorstehdeildar

Hvílum heiðina!

 

Viljum minna fuglahundamenn og konur á að stuttu eftir síðustu prófin hvílum við rjúpurnar á heiðinni fram á haustið og snúum okkur að vatna- sæki- og hlýðniþjálfun.   Innan skamms verður kynnt tilhögun æfinga fyrir alhliðaprófin.

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Hvílum heiðina!

Vorsteh-húfur. Styrkið deildina okkar allra!

Þessar glæsilegu húfur sem eru merktar www.vorsteh.is þ.e. deildinni okkar eru seldar til styrktar starfinu þ.e. fyrir heimasíðuna, verðlaun,  ofl. ofl.

Verðið er aðeins kr. 1500.- stk. og geta menn sent póst á laruseggertsson@gmail.com varðandi upplýsingar og kaup á húfunum.

Núna gerum við okkur sýnileg vorstehfólk og kaupum húfurnar fyrir okkur sjálf eða til gjafa hérlendis sem erlendis.

 

 

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Vorsteh-húfur. Styrkið deildina okkar allra!

Liðakeppnin – úrslit

Liðakeppnin er leikur við lok vorannar fuglahundafólks, dómarar eru leikmenn og reglur aðrar en í prófum. Þetta er að gamni gert fólki og hundum til skemmtunar og engin úrslit fara í gagnagrunna hundanna.

Það voru pointerar sem unnu liðakeppnina í gær annað árið í röð, ensk setter í öðru sæti og írsk setter í því þriðja .  Vorstehliðunum gekk ekki nógu vel og komst hvorugt áfram í úrslitakeppnina. Góð stemmning var hjá hópnum sem endaði með grillveislu um kvöldið. Til hamingju verðlaunahafar

Skipuleggjendur  keppninnar eiga þakkir skyldar fyrir skemmtilegan dag.

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Liðakeppnin – úrslit

Liðin í liðakeppninni

TEAM VORSTEH

Þau lið sem hafa skráð sig til keppni eru:

Vorsteh: Spyrna, Stígur, Jökla og Bylur, Gáta, Gleipnir

E Setter: Sally, Ringo, Doppa og Hroki,Venus,Francini

Írsk setter: Rösty, Skotta,Von

Pointer: Hardy, Kara, Kjarval/Muggur

 

Eftir að keppni líkur verður verðlauna afhending í Sólheimakoti.

Síðar um kvöldið hittumst við í  Veiðihúsinu við Elliðaá og er ætlunin að hittast þar milli 19:00- 20:00.  Ásamt því að kveikja í kjöti og slökkva í með gullnum mjöð. (menn taka sitt eigið kjöt og mjöð með)

Gangi ykkur vel.

Vorstehdeild

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Liðin í liðakeppninni

Hundasýning 2-3. júní – skráningarfrestur

Hundasýning HRFÍ verður haldin 2-3. júní. Þetta er meistarastigssýning þ.e. hundar geta fengið íslenskt meistarastig (en ekki alþjóðlegt meistarastig).  Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 4. maí.  Sjá nánar á www.hrfi.is

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Hundasýning 2-3. júní – skráningarfrestur