Nefnd sem stjórnir deilda í Tegundahópi 7 fól að sjá um þýðingu og aðlögun norskra veiðiprófaregla hefur lokið verkinu og sent inn til stjórnar HRFÍ til samþykktar.
Félagsmönnum voru birtar reglurnar og gafst kostur á að koma að athugasemdum. Nefndin vann úr þeim athugasemdum og hér má sjá þær breytingar sem voru gerðar samkvæmt þeim ásamt meistarareglum sem voru kynntar nýlega.
Ný stjórn var kosin og er hún skipuð eftirfarandi mönnum: Guðni Stefánsson formaður Gunnar Páll Jónsson gjaldkeri Óskar Hafsteinn Halldórsson veiðiprófsnefnd Sigurður Arnet Vilhjálmsson Eiður Gísli Guðmundsson
Vefsíðunefnd: Guðmundur Pétursson Nýliðanefnd: Diana Sigurfinnsdóttir
Afhent voru verðlaun fyrir stigahæstu hunda Vorstehdeildar þar sem Jökull og Oreo gerðu gott mót með eigendum sínum Friðriki og Hildu Björk. Innilega til hamingju með góðan árangur.
Fundargerðin er komin á sinn stað hér á vefnum ásamt ársskýrslu formanns.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Ársfundur Vorstehdeildar var haldinn 2.febrúar 2021
Stjórnir
allra deilda í Tegundarhóp 7 hafa endurskoðað Meistarareglur fyrir íslenskan
veiðimeistara. Endurskokðunarnefnd setur svo reglurnar inn í regluverkið. Hér
eru nýju reglurnar meðfylgjandi:
10. Íslenskur veiðimeistari ISFtCh
Til
að verða íslenskur veiðimeistari (ISFtCh) þarf hundur að hafa náð einu af
eftirfarandi:
1x MS eða 2x vMS í KF eða 1. Einkunn í OF í Alhliðaprófi
Auk
þess þarf hundur:
Að
hafa náð 25 stigum samkvæmt stigatöflu hér að neðan.
Að hundur hafi að lágmarki náð Very good á viðurkenndri hundasýningu eftir að hundurinn er orðinn fullra 24 mánaða.
Örmerktur
skv. reglum HRFÍ.
Stigatafla
til útreikninga á stigum til íslensks veiðimeistara ISFtCh:
MS/vMS: 2 Stig
1.
einkunn UF: 2 stig.
1.
einkunn UF Alhliðapróf: 4 stig
1.einkunn
OF: 3 stig.
1.einkunn
OF Alhliðapróf : 5 stig.
1.einkunn
OF-S: 1stig
Keppnisflokkur KF: Sæti í KF gefa stig sem eru breytileg eftir fjölda hunda sem taka þátt hverju sinni skv. meðf. töflu:
Erlendur veiðimeistari þarf einu sinni að ná 1. sæti með MS eða vMS í KF á Íslandi til að hljóta titilinn ISFtCh.
11.
Íslenskur Alhliða veiðimeistari ISCFtCh
3
X 1. Einkunn í OF eða 3 x sæti í KF
1
x 1. Einkunn í OF sækipróf á sama keppnistímabili og ein af einkunnum/sætum í
OF/KF Heiði er náð.
Að
lámarki Very good á sýningu e. 24 mánaða.
Örmerktur
skv. reglum HRFÍ.
Áunnin
réttindi til veiðimeistara haldast á þeim hundum sem fæddir eru fyrir 01.03.2021
Skammstafanir:
MS:
Íslenskt Veiðimeistarastig
vMS: Vara Íslenskt Veiðimeistarastig
UF: Unghunda flokkur
OF: Opinn flokkur
KF: Keppnis flokkur
OF-S: Opinn flokkur í sækiprófi
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Kynning á meistarareglum
Ársfundur Vorstehdeildar verður haldinn í SÓLHEIMAKOTI 2.febrúar 2021 kl 19.30
Verkefnið eru hefðbundin ársfundarstörf.
Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir 2020
Heiðrun stigahæstu hunda 2020
Kosið til stjórnar Vorstehdeildar.
Að þessu sinni eru 4 sæti laus. Þrjú til tveggja ára og eitt til eins árs.
Önnur mál.
Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð 5 stjórnarmeðlimum. Að þessu sinni eru það sæti Guðmundar Péturssonar, Sigrúnar Guðlaugardóttur og Sigurðar Arnet Vilhjálmssonar sem eru laus til tveggja ár. Sæti Eydísar Grétu Guðbrandsdóttur er laust til eins árs
Við hvetjum áhugasama að bjóða sig til starfa í stjórn.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Ársfundur Vorstehdeildar 2021
Þýðingu á norskum veiðiprófareglum er nú lokið og gefst félagsmönnum kostur á að koma á framfæri ábendingum/athugasemdum varðandi málfar og/eða aðlögun til nefndar í tölvupóstfangið norskthydingth72020@gmail.com
Það var UF flokkur í dag, og við fórum upp á línuveginn við Lyklafell þegar þokan gaf sig aðeins. Veðrið var skyn og skúrir og mátulegur vindur. Tókum í stórum dráttum hring upp undir Gumma Bogg og svo utan um Lyklafell og aftur í vestur. Eitthvað sást af fugli, en svosem aldrei nóg. Flestir hundar fengu séns á fugli en það var bara einn sem náði að nýta sér tækifærið og það var Hlaðbrekku Irma sem náði 3. einkunn. Við óskum Stefan Marshall og Irmu til hamingju 🙂 Síðast en alls ekki síst var pointerinn Langlandsmoens Black Diamond valinn besti unghundur prófs yfir báða daga samanlagt. Þökkum þáttakendum og dómara fyrir daginn.
Kaffipása á Lyklafelli
Það fórst fyrir að taka mynd af Stefan og Irmu, en þessi er innsend 🙂
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Annar dagur Bendisprófs Vorstehdeildar
Stutta útgáfan 😉 Stafalogn var vel fram yfir hádegi. OF fór upp á efra bílastæði og gékk í átt að Borgarhólum. Einn hundur náði einkunn, en það var Pointerinn Vatnsenda Bjartur sem náði 3.einkunn og þar af leiðandi besti hundur prófs í OF.
UF fór á „pallinn“ og gékk niður á svæðið við Lyklafell. Lognið var aðeins að setja strik í reikninginn en upp úr kl 14 fór aðeins að koma smá andvari. 2 hundar náðu einkunn, en það voru Pointerinn Langelandsmoens Black Diamond sem náði 1.einkunn og Bretoninn Hrímlands KK Bella sem náði 3.einkunn. Vel gert 🙂 Til hamingju einkunnarhafar og takk fyrir daginn öll. Þakkir fá dómararnir Guðjón og Svafar. Nýr dagur á morgun. Nokkrar myndir:
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Bendisprófið 1. dagur
Prófið verður sett í Sólheimakoti laugardaginn 3.okt kl.9 og á sunnudag á sama tíma nema annað verði auglýst. Minnum þá sem eru með hund í OF að taka með sér eigin rjúpu. Veðurspáin er fín, mætum með góða skapið 🙂
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Bendispróf Vorstehdeildar setning.