Ársfundur Vorstehdeildar

Ársfundur Vorstehdeildar verður haldinn 24. febrúar 2026 í sal HRFÍ að Melabraut 17 kl. 18:00

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Skýrsla stjórnar og ársreikningur
3. Kosning til stjórnar, samkvæmt reglum HRFÍ: Laus eru 2 eða 4 sæti eftir því hvort á fundinum er kosin 3 eða 5 manna stjórn
4. Heiðrun stigahæstu hunda
5. Önnur mál  

    Við minnum á breyttar reglur um kosningarrétt og kjörgengi sem tók gildi í fyrra en „Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í deildinni og eru með greitt félagsgjald.„.  

    Hlökkum til að sjá sem flesta.

    Kveðja Stjórn Vorstehdeildar

    Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.