Haustpróf Vorstehdeildar var haldið 3.-5. október. Dómarar voru Jørn Åselid og ásamt Einar Kaldi Rafnsson í keppnisflokk. Skráning var til fyrirmyndar og góð stemming þrátt fyrir afarslæmt veður!
Styrkaraðilar prófs voru Sportman’s Pride – Dýrakofinn, Óstöðvandi (Non-Stop Dogwear) og Vikingknives (Laser-merking á ýmsa hluti). Þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.
Skráning var mjög góð
Laugardaginn voru 14 hundar skráðir.
– 5 í unghundaflokki
– 9 í opnum flokki
Sunnudaginn voru 12 hundar skráðir.
– 5 í unghundaflokki
– 7 í opnum flokki
Mánudaginn voru 7 hundar skráðir í keppnisflokk.
ÚRSLIT
Laugardagur:
Enginn einkunn náðist – afar slæm skilyrði á heiðinni
Sunnudagur:
Náðist ein einkunn í opnum flokki og var það Arkenstone Með Allt Á Hreinu með 3. einkunn. Þar að leiðandi besti hundur dags.

Mánudagur:
Einn hundur náði sæti í keppnisflokk. Það var hún Ljósufjalla Heiða sem stóð uppi sem sigurvegari keppnisflokk, 1. sæti.

Stjórn Vorsteh deildar þakkar öllum fyrir frábæra helgi í góðum félagsskap!
Einnig óskum við sigurvegurum innilega til hamingju!


