Hundasýning HRFÍ verður haldin 2-3. júní. Þetta er meistarastigssýning þ.e. hundar geta fengið íslenskt meistarastig (en ekki alþjóðlegt meistarastig). Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 4. maí. Sjá nánar á www.hrfi.is
Hundasýning 2-3. júní – skráningarfrestur
Liðakeppni fuglahunda
|
Um næstu helgi verður haldin liðakeppni fuglahunda og fer hún fram laugardaginn 5. maí. Mæting er í Sólheimakoti kl.9.30. Styrktaraðilar liðakeppninnar eru snati.is og sportvörugerðin.is. Keppnin fer fram með svipuðu sniði og í fyrra þ.e 3. hundar í liði og má hafa einn til vara. Farið verður í grundvallaratriðum eftir veiðiprófsreglum HRFÍ fyrir tegundarhóp 7. Allir aldurshópar af tegundarhópi 7 eru gjaldgengir. Keppt verður eftir keppnisflokks fyrirkomulagi með útsláttar fyrirkomulagi þó með nokkrum undantekningum og á léttari nótunum. Eina brottrekstrarsök hunds úr keppninni er ársargirni og önnur slík óáran.Engin hjálpartæki við stýringu á hundi eru leyfð en persónuleg hjálpartæki leiðanda eru í lagi. Atriði sem telja: Fuglavinnur, veiðivilji, eiginleikar til að finna fugl, notkun á ytri aðstæðum og hraði. Annars er það bara úrskurðaraðilanna að meta niðurstöðurnar. Ein nýbreytnin þetta árið er að hvert lið þarf að útnefna skyttu liðsins. Nú er um að gera að drífa sig af stað og safna liði og melda sig í þessa „ keppni“. Móttaka skráninga: Svafar S:8609727, Þorsteinn s:8930228 og Bragi s: 8562024 |
Dagur 3. í Írsk setter prófinu
Það var flottur dagur hjá Vorsteh. Enn og aftur sannast það hvað Vorsteh eru frábærir veiðihundar.
Það voru tveir hundar sem náðu sæti í keppnisflokk í dag.
1.sæti var ISCh C.I.B. Zetu Jökla
2.sæti var ISCh – ISFtCh Hrímþoku Sally Vanity
Óskar Vorstehdeild Pétri og Henning til hamingju með árangurinn.
Kveðja Vorstehdeild
Dagur 2. í Irsk setter prófinu
Opinn flokkur:
Það var Vatnsenda Kara sem náði 1.enkunn og var besti hundur prófs
Esjugrundar Spyrna fékk 2. einkunn
Kaldalóns Doppa 2. einkunn
Elding 2. einkunn
Unghundaflokkur:
Gaggajunis von fékk 2. einkunn og var besti hundur prófs
Snjófjalla Hroki fékk 2. einkunn
Huldu Bell von Trubon fékk 2. einkunn
Vorstehdeild óskar þeim sem náðu einkunn í dag til hamingju með árangurinn.
kveðja V0rstehdeild
Dagur 1. í Írsk setter prófinu
Það var mikill raki í loftinu í dag og aðstæður því kannski með erfiðara mótinu.
Það sannaðist enn og aftur hvað Vorsteh eru öflugir veiðihundar og var það Vorsteh sem var besti hundur prófs.
Engin hundur hlaut einkunn í UF. En tvær einkunnir voru í OF.
Heiðnabergs Gáta hlaut 2. einkunn í OF og var valin besti hundur prófs
Vatnsenda Kjarval hlaut 2. einkunn í OF.
Vill Vorstehdeild óska Jóni Hákoni til hamingju með árangurinn og öðrum sem fengu einkunn
Kveðja Vorstehdeild
Fimm vikna strýhærðir hvolpar
Hvolparnir níu sem Yrja átti med Kragborg’s Mads eru orðnir fimm vikna og sjást hér skoða heiminn. Einhverjir rakkar eru á lausu og gefur Lárus frekari upplýsingar í síma 861-4502.
Ársfundur Vorstehdeildar
Ársfundur deildarinnar fyrir síðasta starfsár var haldinn á A. Hansen í gærkvöldi.
Stigahæstu hundar voru heiðraðir.
Stigahæsti unghundur var Heiðnabergs Bylur von Greif, eigandi Jón Garðar Þórarinsson.
Stigahæsti hundur í opnum flokk var ISFtCh. Esjugrundar Spyrna, eigandi Svafar Ragnarsson.
Stjórn óskar Jóni Garðari og Svafari til hamingju með glæsilegan árangur.
Úr stjórn gengu Sæþór Steingrímsson og Jón Hákon Bjarnason og er þeim þökkuð störfin fyrir deildina og tegundina okkar. Tveir nýir aðilar komu í stjórn, þeir Guðjón Snær Steindórsson og Pétur Alan Guðmundsson.
Ársskýrsla stjórnar Vorstehdeildar kemur innan skamms á heimasíðuna.
Veiðipróf ÍRSK 28.-30. apríl
Þáttökulisti fyrir ÍRSK setter prófið sem verður 28.-30. apríl. Prófið verður sett alla dagana í Sólheimakoti kl. 09:00. Áhugasamir um fuglahundasportið eru velkomnir.
Prófstjóri er Margrét Kjartansdóttir og fulltrúi HRFÍ er Egill Bergmann
Laugardagur 28. apríl.
Jan-Olov Daniels dæmir UF/OF
Unghundaflokkur
Snjófjalla Dofri – enskur seti
Gagganjunis Von – írskur seti
Snjófjalla Hroki – enskur seti
Huldu Bell von Trubon – weimaraner
Opinn flokkur
Zetu Jökla – snögghærður vorsteh
Fuglodden´s Rösty – írskur seti
Þúfa – írskur seti
Kaldalóns Doppa
Vatnsenda Kjarval
Egill Bergmann dæmir OF
Opinn flokkur
Heiðnabergs Gáta von Greif – snögghærður vorsteh
Elding – enskur seti
Neisti – enskur seti
Vatnsenda Kara – pointer
Vatnsenda Muggur – pointer
Sunnudagur 29. apríl
Jan-Olov Daniels dæmir OF
Opinn flokkur
Heiðnabergs Gáta von Greif- snögghærður vorsteh
Heiðnabergs Gleypnir von Greif- snögghærður vorsteh
Esjugrundar Spyrna- snögghærður vorsteh
Vatnsenda Kara – pointer
Neisti – enskur seti
Elding – enskur seti
Vatnsenda Muggur – pointer
Fuglodden´s Rösty – írskur seti
Pétur A Guðmundsson dæmir UF/OF
Unghundaflokkur:
Gagganjunis Von – írskur seti
Huldu Bell von Trubon – weimaraner
Snjófjalla Hroki – enskur seti
Snjófjalla Dofri – enskur seti
Opinn flokkur:
Kaldalóns Doppa – enskur seti
Vatnsenda Kjarval – pointer
Þúfa – írskur seti
Mánudagur 30. apríl
Jan-Olov Daniels og Egill Bergmann
Keppnisflokkur
Zetu Jökla – snögghærður vorsteh
Barentsvidda´s B Hardy Du Cost´ Lot – pointer
Elding – enskur seti
Hrímþoku Sally Vanity – enskur seti
Francin´s Amicola – enskur seti
Kaldalóns Ringó – enskur seti
Vorstehdeild óskar þátttakendur góðs gengis
Ársfundur Vorstehdeildar þriðjudagskvöldið 24. apríl kl. 20
Stjórn Vorstehdeildar vill minna félagsmenn sína og áhugafólk um tegundina á ársfund deildarinnar í A. Hansen Hafnarfirði 24. apríl kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf
Bestu kveðjur
stjórnin
Leiðarvísir að A.Hansen er að finna hér
Skráningafrestur í Írsk Setter prófið
Skráningafrestur í ÍRSK setter prófið rennur út á sunnudag.
Prófið verður 28,29 og 30 apríl. Það er nr:501206. Prófað verður í UF, OF og KF.
Dómarar verða Jan-Olov Daniels frá svíþjóð, Pétur A Guðmundsson og Egill Bergmann. Prófstjóri er Margrét Kjartansdóttir. Ath að skrifstofa HRFÍ er opin 9-13 á föstudag fyrir þá sem ætla að skrá hundinn sinn þar.
Einnig hægt að millifæra á reikning 515-26-707729 KT:680481-0249 og senda staðfestingu á hrfi@hrfi.is, það þarf að setja nafn og ættbókarnúmer hunds og nafni á leiðanda. Þeir sem skrá sig þannig geta gert það fram á sunnudagskvöld (miðnætti)
Kostnaður er
4.500.- fyrir einn dag (1 x UF eða OF )
7.000.- fyrir tvo daga (2 x UF eða OF )
9.500.- fyrir þrjá daga (2 x OF og 1 x KF )
Kveðja Vorstehdeild











