Skráningarfrestur á næstu sýningu HRFÍ

Minnum á að síðasti skráningardagur á ágústsýningu félagsins er miðvikudaginn 1. ágúst nk. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.

Hægt er að skrá á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 2. hæð eða hringja inn skráningu eða senda tölvupóst en þá verður kortanúmer og nafn hundsins í ættbók að fylgja ásamt því í hvaða flokk á að skrá hundinn.

Veitt eru íslensk og alþjóðlega meistarastig á þessari sýningu.  Sjá nánar á www.hrfi.is

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.