Æfing í Borgarfirði laugardaginn 15. sept.

Stjórn Vorstehdeildar mun fara í Borgarfjörðinn laugardaginn 15. sept. til að velja væntanleg prófsvæði fyrir próf deildarinnar sem haldið verður 5-7. okt.

Þeir sem hafa áhuga á að mæta og þjálfa hundana sína í leiðinni er velkomið að mæta í Baulu söluskálann í Borgarfirðinum á hádegi laugardag.  Athugið að sauðfé getur verið á svæðinu.

Menn geta sameinast í bíla frá Reykjavík og hafi þá samband við neðangreinda

Frekari upplýsingar gefa Gunnar í s: 893-3123, Lárus í s:861-4502 og Pétur í s:896-2696

Allir velkomnir

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.