
Vorpróf Vorstehdeildar verður haldið daganna 21., 22. og 23. mars 2025. Prófnúmer: 502601.
Styrktaraðilar eru:
– Sportsman´s Pride – Dýrakofinn
– Óstöðvandi (Non-stop dogwear)
– Vikingknives (Lasermerkingar á ýmsa hluti o.fl).
Seinasti skráningardagur er sunnudagur. 15. mars 2026.
Dagskrá prófs:
Prófsetning verður auglýst síðar en prófað verður í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Dómarar verða:
Tore Chr Røed auk Guðjóns S. Arinbjarnarson í keppnisflokki
Fulltrúi HRFÍ:
Guðjón S. Arinbjörnsson
Prófstjóri:
Jón Valdimarsson.
Laugardagur 21. mars.
Unghundaflokkur
Opinn flokkur
Sunnudagur 22. mars.
Unghundaflokkur
Opinn flokkur
Mánudagur 23. mars.
Keppnisflokkur
Veitt verða verðlaun fyrir besta hund í UF og OF hvorn prófdag og svo verða veitt verðlaun í KF fyrir 1. sæti. Í KF geta dómarar veitt Meistarastig telji þeir hund hafa unnið til þess.
Skráning í prófið:
Skráning getur farið fram með tölvupósti eða beint í gegnum skrifstofu HRFÍ. Hægt að millifæra á HRFI á reikning 515-26-707729 Kennitala: 680481-0249 og setja nafn hunds og prófnúmer 502601 í skýringu á færslunni ásamt því að senda afrit af greiðslu á hrfi@hrfi.is og vorsteh@vorsteh.is, eða að skrá síg á skrifstofu HRFÍ eða símleiðis í 588 5255 þar sem greitt er með því að gefa upp kortanúmer.
Veiðipróf . 1 dagur- 8.000 kr.
Veiðipróf 2ja daga – 11.900 kr.
Veiðipróf 3ja daga – 15.900 kr.
Við skráningu þarf að koma fram:
-Nafn eiganda
-Nafn hunds
-Ættbókarnúmer
-Nafn leiðanda
-Hvað flokk er skráð í
-Hvaða daga
-Prófnúmer 502601
Sækibráð eða vottorð:
Sækibráð: Þátttakendur mæti sjálfir með Rjúpu, fuglinn skal vera heill og ferskur, frystur, þiðinn, eða þurrkaður og skal viðurkenndur af dómara.
Sækivottorð: Samþykkt sókn á prófi fyrir standandi fuglahunda þar sem einkunn eða umsögn staðfestir að hundurinn hafi útfært viðurkennda sókn og náð minnst 7 stigum í frjálsri leit á sækiprófi eða alhliðaprófi í OF/UF
Viðurkenning á sækibráð í KF: Þátttakandi er ábyrgur fyrir að taka með sér eigin sækibráð sem skal samþykkt af dómara (ekki hægt að nota sækivottorð í KF).
Prófstjóri áskilur sér rétt til breytinga ef þörf er á vegna skráningar og fjölda hunda.
Vinsamlega athugið að síðasti skráningardagur í prófið er á miðnætti sunnudaginn 15. Mars 2026.



