Rásröð í Sportsmans Pride – Veiðipróf Vorstehdeildar 21. til 23. mars 2026 – Prófnr. : 502602

Góð skráning er í prófið okkar sem er mikið gleðiefni:
– 11 hundar á laugardag (2 í UF og 9 í OF).
– 12 hundar á sunnudag (3 í UF og 9 í OF).
– 7 hundar í KF á mánudag.

Ráslistar eru í meðfylgjandi myndum, en röðun var gerð með hjálp gervigreindar (ChatGPT) .

Prófin verða sett laugardag og sunnudag í Sólheimakoti kl. 9:00 og þeim slitið þar að loknu prófi.

Keppnisflokk áætlum við að setja kl. 12 á mánudag og líklega á þeim stað þar sem prófið verður, en við ætlum að skoða nánar veðurspár og gefa út nánari upplýsingar um það.

Við hvetjum alla aðila sem hafa áhuga á að kynna sér veiðipróf að koma og ganga með í prófinu.

Ef þið hafið athugasemdir eða óskir, vinsamlegast hafið samband við prófstjóra (Jón Valdimarsson) eða sendið tölvupóst á netfang Vorstehdeildar (vorsteh@vorsteh.is).


Við vonumst eftir góðu veðri, nægum fugli og góðri stemningu. Umfram allt óskum við þátttakendum velfarnaðar og góðs árangurs!

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.