Deildarfundur Vorstehdeildar 16. maí.

Deildarfundur Vorstehdeildar verður haldinn laugardaginn 16. maí kl. 9:00 – 10:00 í Sólheimakoti.

Engin formleg dagskrá. Opin umræða um allt sem við kemur Vorstehdeild, veiðipróf, sækipróf og æfingagöngur. Vorstehdeild óskar eftir aðilum sem eru tilbúir að leiða göngur og sækiæfingar. Gott tækifæri fyrir nýliða að kynnast starfi Vorstehdeildar. Að loknum fundi er hægt að fara í göngu með þeim nýliðum sem hafa áhuga.
Heitt verður á könnunni.
Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.