Skráningar eða afskráningar – vegna frestunar á veiðiprófi Vorstehdeildar um eina viku.

Eins og fram kom í fyrri tilkynningu þurfti að fresta Sportsman’s Pride prófinu um eina viku vegna veðurtengdra aðstæðna, sem er ekki óska staða.

Vegna þessa verður opnað fyrir breytingar á skráningum til miðnættis sunnudaginn 22. mars 2026. Það felur í sér:

• Þeir sem ekki geta mætt geta sent tölvupóst á hrfi@hrfi.is, með afriti á vorsteh@vorsteh.is, og fengið endurgreitt.

• Þeir sem vilja skrá sig í prófið en voru ekki þegar skráðir geta sent inn skráningu ásamt viðeigandi upplýsingum (samkvæmt upphaflegri auglýsingu prófsins) og staðfestingu á greiðslu á sömu netföng.

• Þeir sem þurfa að færa sig á milli daga geta sent tölvupóst á sömu netföng og óskað eftir tilfærslu.

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband með því að senda tölvupóst á vorsteh@vorsteh.is.

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.