Félagasfundur á vegum deilda í tegundahóp 7 fimmtudaginn 9. maí kl.20:00 í Sólheimakoti.
Dagskrá.
1. Æfingar og próf í sumar
2. Námskeið í sumar.
3. Nýjar veiðiprófsreglur
4. Önnur mál
Félagasfundur á vegum deilda í tegundahóp 7 fimmtudaginn 9. maí kl.20:00 í Sólheimakoti.
Dagskrá.
1. Æfingar og próf í sumar
2. Námskeið í sumar.
3. Nýjar veiðiprófsreglur
4. Önnur mál
Vorpróf Fuglahundadeildar var haldið helgina 4-5 mai í frábæru veðri.
Á laugardeginum var OF þar sem 8 hundar voru skráðir, dómari Leif Jonny Weium og KF þar sem 7 hundar kepptu, dómarar Kjell Enberget og Bard Johansen .
5 Vorstehhundar tóku þátt þennan dag og eftir daginn voru það
Óskar Hafsteinn Halldórsson og Veiðimela Yrja sem náðu 1. einkunn í OF eftir flotta vinnu. Við óskum Óskari innilega til hamingju með árangurinn, vel gert 🙂
Í Keppnisflokki náðu Guðni Stefánsson og GG Sef / Guffi 3. sæti. Innilega til hamingju með árangurinn Guðni 🙂
Á sunnudeginum voru 12 hundar í blönduðu UF/OF partýi, dómari Bard Johansen
4 Vorstehhundar tóku þátt í þessum hóp, 3 í UF og 1 í OF. Það var
Jón Hákon Bjarnason og Fjallatinda Skuggi sem náðu 2. einkunn og besti hundur í unghundaflokki. Við óskum Jóni innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Þökkum FHD fyrir flott próf 🙂
Christine Due verður með námskeið á Íslandi 15 – 16 júní 2019.
Boðið verður upp á þrjá flokka, unghundar, hundar eldri en 2ja ára með litla reynslu og hundar eldri en 2ja ára sem eru lengra komnir.
Hámarsfjöldi í hverjum hóp er 8 hundar.
Námskeiðin standa yfir laugardag og sunnudag í 2- 4 klst í seinn hver hópur, hópaskipting verður gefin út þegar fjöldi þátttakenda er ljós.
Það sem verður farið í á þessum námskeiðum er:
Hundar yngri en 2ja ára: innkall, sitja, liggja, taumganga með og án taums, sækivinna, stýring og spor.
Hundar endri en 2ja ára með litla reynslu: innkall, sitja, liggja, taumganga með og án taums, spor, vatnavinna og skotþjálfun.
Hundar eldri en 2ja ára með reynslu: sækivinna, vantavinna, spor, o.fl. hundar í þessum hópa þurfa að hafa reynslu.
Verð fyrir hvern hund er 12.000.-
Aðeins 6 – 8 hundar í hóp.
Skráningu líkur miðvikudaginn 15. maí.
Skráningu skal senda á netfangið vorsteh@vorsteh.is skráning er ekki tekin gild nema greiðsla fylgi með og þátttökugjald fæst ekki endurgreitt. Skráningargjald þarf að greiða inn á reikning Vorstehdeildar
327 – 26 – 057111 kennitala 5807111380. Vinsamlega látið kvittun fyrir greiðslu fylgja skráningu.
Hver er Christeine Due ?
Christine á og rekur Kragsborg hundaskólan í Danmörku þar sem hún bíður upp á námskeið fyrir veiðihunda. En faðir Christine, Anders Due stofnaði Kragsborg árið 1972. Christine er með 15 ára reynslu í kennslu, hefur veitt og tekið þátt í veiðiprófum í rúm 20 ár með frábærum árangri. Meða annars hefur hún unnið Saint Hubertus World Championship fimm sinnum.
Það er gaman að segja frá því að árið 2005 sýndi Einar Hallson þá fyrirhyggju að sækja um lénið Vorsteh.is. Þegar Vorstehdeild HRFÍ var stofnuð 2008 og heimasíða gerð lét hann deildina hafa lénið.
Einar átti snögghærða Vorstehhundinn ISCh ISFtCh Óðinn sem fæddur var 2002. Óðinn var undan Radbach’s Silver Bullet og Gæfu Ölmu sem var úr fyrsta gotinu hjá Ívari Erlendssyni.
Alla tíð hefur Einar borgað árgjaldið af léninu, sem er góður stuðningur við deildina, safnast þegar saman kemur á þessum árum, og þökkum við Einari kærlega fyrir fyrirhyggjuna og stuðninginn.
Núna er Vorstehdeild tekin við sem rétthafi lénsins. Einar vildi engar þakkir fyrir en við verðum nú aðeins að minnast á þetta 😊
Aftur að Óðni.
Hann er sennilega yngsti hundurinn sem hefur fengið 1.einkunn í Opnum flokki, en það gerðist einmitt á tveggja ára afmælisdeginum hans 😊 Óðinn varð einnig veiðimeistari fyrir 3ja ára aldurinn ásamt því að verða sýningarmeistari. Frábær árangur.
Einar sendi okkur þessa flottu mynd af Óðni ásamt upplýsingum um árangur hans á veiðiprófum. Takk fyrir okkur Einar !
Belcandopróf Vorstehdeildar var haldið núna um helgina. Dómari var Alexander Kristiansen frá Noregi.
Unghundar byrjuðu á föstudeginum í sól og frábæru veðri, en kannski helst til rólegum vindi þar sem gufustrókarnir frá Hellisheiðarvirkjun stóðu lóðbeint upp í loftið. Prófstjóri var Sigurður Ben Björnsson. Farið var upp á Gumma Bogg og gengið niður í átt að Lyklafelli og svo hring í vestur. Nokkrir fuglar fundust en engin var fuglavinnan þótt að sumir hafi fengið góðan séns á henni. Ungundarir að vinna fínt og fengu rúman tíma.
Á laugardeginum var farið frá Nesjavallaveginum, rétt fyrir ofan Gumma Bogg og upp á heiði í átt að Borgarhólum. Prófstjóri var Guðni Stefánsson. Það var fullt blandað party, 4 UF og 10 OF hundar.
Frábært veður, heldur meiri vindur en daginn áður sem var frábært, og kalt. Einar Guðna var göngustjóri og það var ekki lengi beðið eftir að fyrstu fuglar dagsins fundust og svo stóðu menn í fugli upp í mitti allan daginn, sem varð ekki svo langur af þeim sökum og mikið fjör. Úrslit laugardagsins voru eftirfarandi:
UF
Almkullens Hrima, Breton, leiðandi Dagfinnur Smári Ómarsson 1. einkunn.
OF
Rypleja’s Klaki, Breton, leiðandi Dagfinnur Smári Ómarsson 1.einkunn
Veiðimela Jökull, Vorsteh, leiðandi Friðrik G. Friðriksson 2.einkunn
Rjúpnasels Rán, ES, leiðandi Eyþór Þórðarson 3.einkunn
Á sunnudeginum var sama upp á teningnum með veðrið, frábært veður og farið á svipaðan stað og daginn áður. Prófstjóri var Guðni Stefánsson og dómaranemi var Einar Örn. Þennan daginn var bara OF og 10 hundar mættir. 3 mínútum eftir fyrsta slepp kom fyrsti standurinn og svo var aftur nóg af fugli og endalausir sénsar.
Það er skemmst frá því að segja að sömu OF hundarnir og höfðu landað einkunn daginn áður voru þeir sem stóðu uppi með einkunn eftir daginn.
OF
Rypleja’s Klaki, Breton, leiðandi Dagfinnur Smári Ómarsson 1.einkunn
Veiðimela Jökull, Vorsteh, leiðandi Friðrik G. Friðriksson 3.einkunn
Rjúpnasels Rán, ES, leiðandi Eyþór Þórðarson 3.einkunn
Alla dagana var reynt að lýsa prófinu á Belcandoisland snappinu og svo á laugardag og sunnudag var prófi slitið í Sólheimakoti með rjómavöfflum og kaffi að hætti Diönu ásamt kræsingunum frá Ljósasmiðjunni.
Það er óhætt að segja að Dagfinnur hafi gert góðan túr suður fyrir heiðar, fer norður með
3 x 1.einkunn, klifjaður af fóðri, viskýi og glösum 😉
Stjórn Vorstehdeildar óskar einkunnarhöfum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar öllum þáttökuna.
Ekki má gleyma að þakka öllum sem hjálpuðu til. Sigga Benna fyrir prófstjórn á föstudegi, Einari Guðna fyrir að hjálpa okkur að finna svæði og stjórna göngunni og fleirum sem lögðu hönd á plóg. Styrktaraðilar fá ómældar þakkir, Belcando og Famous Grouse og svo Ljósasmiðjan fyrir frábært morgunverðarhlaðborð.
Hér eru nokkrar myndir frá helginni og af einkunnarhöfum og Ívari Erlends að blása til veislunnar 😉
Dómari: Alexander Kristiansen
Dómaranemi: Einar Örn Rafnsson
Dómari: Alexander Kristiansen
Dómari: Alexander Kristiansen
Dómaranemi: Einar Örn Rafnsson
Föstudagur 5. apríl
Dómari: Alexander Kristiansen
Unghundaflokkur:
Almkullens Hrima |
Fjellamellas AC Nordan Garri |
Fjallatinda Daniela Darz Bór |
Fjallatinda Ýrr |
Fjallatinda Freyr |
Laugardagur 6. apríl
Dómari: Alexander Kristiansen
Unghundaflokkur:
Almkullens Hrima |
Fjellamellas AC Nordan Garri |
Fjallatinda Daniela Darz Bór |
Fjallatinda Ýrr |
Opinn flokkur:
Húsavíkur Fönn |
Veiðimela Yrja |
Rypleja’s Klaki |
Háfjalla Askja |
Vatnsenda Karma |
Rjúpnasels Rán |
Bylur |
Vatnsenda Aron |
Rjúpnabrekku Black |
Veiðimela Jökull |
Á biðlista:
Sångbergets Jökulheima Laki Vatnsenda Bjartur |
Sunnudagur 7. apríl
Dómari: Alexander Kristiansen
Opinn flokkur:
Húsavíkur Fönn |
Veiðimela Yrja |
Rypleja’s Klaki |
Vatnsenda Karma |
Rjúpnasels Rán |
Bylur |
Vatnsenda Aron |
Rjúpnabrekku Black |
Veiðimela Jökull |
Sångbergets Jökulheima Laki |
Vatnsenda Bjartur |
Nánari upplýsingar væntanlegar
Á ársfundi Vorstehdeildar voru stigahæstu hundar ársins 2018 heiðraðir.
Friðrik G. Friðriksson tók við þrem viðurkenningum þar sem Veiðimela Jökull varð stigahæstur í OF, KF og Over All, og Unnur Unnsteinsdóttir tók við viðurkenningu fyrir Sångbergets Jökulheima Laka sem var stigahæstur í UF.
Innilega til hamingju með árangurinn !