Alþjóðleg hundasýning HRFÍ – Úrslit

Snögghærður V0rsteh

Hvolpaflokkur 4-6 mánaða, Rakkar:

Stangarheiðar Bogi var besti hvolpur 4-6 mánaða

Stangarheiðar Bogi  Eigandi Kristjón Jónsson / Díana Hrönn Sigurfinnstdóttir. 1 sæti í sínum flokk og 3.sæti í úrslitum í 4-6 mánaða.

Hvolpaflokkur  6-9 mánaða, Rakkar:

Kópavogs Sprettur var besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða

Kópavogs Sprettur, Eigandi: Halldór Lárusson. 1.sæti í sínum flokki, besti hvolpur tegundar, heiðursverðlaun og 5-6 sæti í besti hvolpur sýningar.

Hvolpaflokkur 6-9 mánaða, Tíkur:

Kópavogs Arí, besta tík í flokki 6-9 mánaða

Kópavogs Arí, Eigandi: Guðjón Snær Steindórsson. 1.sæti í sínum flokk, og var besta tík tegundar í hvolpaflokki 6-9 mánaða og var í 2.sæti um besti hundur tegundar.

Kópavogs Dimma

Kópavogs Dimma, Eigandi: Sæþór Steingrímsson. 2.sæti í sínum flokk.

(vantar mynd af Kópavogs Myrru)

Kópavogs Myrra, Eigandi Einar Sveinsson, Mætti ekki

Vinnuhundaflokkur Rakkar

Høgdalia`s Ýmir, Besti Rakki tegundar

Ýmir, Eigandi: Rafnkell Jónsson. 1.sæti í sínum flokk, Excellent , meistaraefni, besti rakki og fékk íslenskt meistarastig og  CACIB og Besti hundur af gagnstæðu kyni,  er komin með öll skilyrði til að verða íslenskur meistari.

Vinnuhundaflokkur Tíkur

Gruetjenet's Ynja

Gruetjenet´s G-Ynja, Eigandi: Gunnar Pétur Róbertsson / Steindór Gunnarsson. 1.sæti í sínum flokk, Excellent og íslenskt meistarastig og vara CACIB

Meistaraflokkur Tíkur

Rugdelia QLM Lucienne Mynd: Palli BESTI HUNDUR TEGUNDAR

ISCh Rugdelias Qlm Lucienne, Eigandi Einar Páll Garðarsson / Sigríður Oddný Hrólfsdóttir. 1.sæti í sínum flokk,Besta Tík tegundar og Besti hundur tegundar.

Strýhærður Vorsteh

Opinn flokkur:

Ester

Ester, Eigandi: Hreimur Garðarsson. Hún fékk very good á sýningunni.

Óskum öllum innilega til hamingju með árangurinn.

Kveðja Vorstehdeild

p.s. Það vantar frekari upplýsingar um nokkra hunda og væri fínt ef viðkomandi gæti sent mér nánari upplýsingar  á diverss@mi.is

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Alþjóðleg hundasýning HRFÍ – Úrslit

Hundasýning um helgina

Rugdelia QLM Lucienne Mynd: Palli

Það verður Alþjóðleg hundasýning um helgina hjá HRFÍ og eru samtals 9 Vorsteh sýndir.

Það verður kl 10:52 strýhærður Vorsteh (1)

og kl 10:56 verður snögghærður Vorsteh (8)

Það verður gaman að fylgjast með velgengni Vorsteh manna og kvenna.

Gangi ykkur vel um helgina.

Kveðja Vorstehdeild

 

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Hundasýning um helgina

Kragborg Arki og Christine Due

Kragborg Arki og Christine Due
forsvarede deres VM titel og blev for tredje gang i træk verdensmester i Saint
Hubertus.

Kragborg Arki og Christine Due

Se sammendrag fra
VM:  Link

VM
for stående hunde og VM i Saint Hubertus blev afholdt i Frankrig fra d. 13-16
oktober og det danske hold klarede sig rigtig godt. Udover Christine`s
guldmedalje i Saint Hubertus, vandt Alex Nissen og Jens Abildgård bronze for
hold i Saint Hubertus.
Det kontinentale hold for stående hunde vandt bronze
for hold. Christine Due vandt excellent med Kragborg Arki. Anders Due vandt to
gange tres bon med Kragborg Tascha. Jens Abildgård vandt et tres bon og et con
med Hjortlund`s Arnold.
Desuden vandt Åge Christiansen et tres bon for de
engelske hunde.
Godt gået af det danske hold.

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Kragborg Arki og Christine Due

Fuglehunden – Frábær grein um Vorstehprófið

Smellið á mynd til að sjá nánar

Frh.

Smellið á mynd til að sjá nánar

Frh…

Smellið á mynd til að sjá nánar

Frh..

Smellið á mynd til að sjá nánar

Frábært að fá svona flotta umfjöllun í blaðinu Fuglehunden í Noregi.

Kveðja Vorstehdeild

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Fuglehunden – Frábær grein um Vorstehprófið

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2011.

Föstudagurinn 28. október-sunnudagsins 30. október-(3 dagar)

Laugardagurinn 5. nóvember-sunnudagsins 6. nóvember-(2 dagar)

Laugardagurinn 19. nóvember-sunnudagsins 20. nóvember-(2 dagar)

Laugardagurinn 26. nóvember-sunnudagsins 27. nóvember-(2 dagar)

A.T.H. Ekki leyfð rjúpnaveiði helgina 12-13. nóvember.

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2011.

Frá stjórn smáhundadeildar!

Við vekjum athygli á því að dagskráin hefst kl. 15.30 en ekki kl. 14 eins og upphaflega var gert ráð fyrir.

Smáhundadeild býður upp á nýstárlega sýningaþjálfun (generalprufu) á Korputorgi laugardaginn 12. nóvember, sem stendur öllum tegundum til boða.

Í meðfylgjandi viðhengi eru frekari upplýsingar um generalprufuna. Generalprufan á PDF

Ef þú telur að þitt fólk hafi áhuga á að taka þátt, biðjum við þig um að láta vita, annað hvort með tilkynningu á heimasíðu deildarinnar eða gegnum póstlista, eftir því sem betur hentar.

Við bendum á að nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku gegnum netfangið smahundadeild@gmail.com og fá þátttakendur bæði skriflega umsögn um hundinn sinn frá dómaranema og um sjálfa sig sem sýnendur frá einum reyndasta sýnanda félagsins.

Glæsileg verðlaun eru í boði, en fyrst og fremst er hugmyndin sú að breyta aðeins til og hita upp á léttu nótunum fyrir nóvembersýningu félagsins.

Með kærri kveðju og óskum um gott gengi og góða skemmtun á komandi sýningu HRFÍ.

Stjórn Smáhundadeildar.

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Frá stjórn smáhundadeildar!

Veiðimynd tekin síðustu helgi í opnuninni

ISCh. C.I.B. Zetu Jökla

Pétur Alan tók þessa flottu mynd núna um síðustu helgi og var þetta fyrsta helgin í yfirstandandi rjúpnaveiði tímabili.

Þakkar Vorstehdeild fyrir innsenda mynd og viljum við gjarnan fá fleiri.

Kveðja Vorstehdeild

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Veiðimynd tekin síðustu helgi í opnuninni

Óskum eftir flottum myndum til að birta á síðunni

Kæru veiðimenn/konur.

Það væri frábært að fá skemmtilegar veiðimyndir frá ykkur sem teknar eru á þessu veiðitímabili, hvort sem er um flottar myndir á rjúpnaslóðum eða gæsa/anda myndir með flottum hundum:) Sendið myndir á diverss@mi.is

Fyrirfram þakkir fyrir flottar myndir:)

Kveðja Vorstehdeild

 

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Óskum eftir flottum myndum til að birta á síðunni

Rjúpnaveiðar

Zelda Mynd:Kjartan og Gréta

Daginn gott fólk!

Nú fer að líða að fyrsta degi í rjúpnaveiði og viljum við minna fólk á að gæta þess að vera vel búin.

Góðan hlífðarfatnað, skó, nesti,GPS er mjög nauðsynlegt og um að gera að vera ekki að fara ef veðurspáin er slæm.

Hugsum um öryggið nr.1 og svo auðvitað eins og síðustu ár að gæta hófs í veiði.

Gangi ykkur vel á rjúpnaslóðum

Kveðja Vorstehdeild

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Rjúpnaveiðar

Fríða fundin:)

Weimaraner tíkin Fríða fannst rétt í þessu við Bláfjallaafleggjara, eftir 3 sólhringa.

Viljum við þakka öllum sem hjálpuðu til við að leitina og Kristín og Hulda sérstaklega þakklátar

Kveðja Vorstehdeild

Birt í Forsíðufrétt | Slökkt á athugasemdum við Fríða fundin:)