Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur stjórn Vorstehdeildar ákveðið að fresta Sportsman’s Pride veiðiprófi deildarinnar um eina viku. Prófið fer því fram dagana 28.–30. mars.
Vegna veðurs hefur Icelandair fellt niður allt flug og kemst dómari prófsins því ekki til landsins. Icelandair getur eingöngu boðið flug á laugardag í gegnum París, sem gengur illa upp.
Til viðbótar bendir veðurspá til versnandi aðstæðna á prófdögum, en spáð er 14–21 m/s vindi á mánudag, sem líklega hefði leitt til aflýsingar þann dag. Einnig er spáð mikilli snjókomu fram á laugardagsmorgun og talsverðum vindi, auk þess sem vindur yfir 10 m/s er í spá fyrir sunnudag.


